Mig langaði bara að segja þessa sögu og ég vil taka það fram að hún er alveg dagsönn.
í fyrra þá kom hingað einhver kínverskur ráðamaður (man ekki hvað hann heitir, en það var ekki þessi sem allt Falun Gong vesenið var útaf í sumar)
Allavega það voru rosa mótmæli og allir voða ósáttir við að hann skyldi koma hingað.
Ég var heima hjá mér á Laugardagskvöldi, bara að horfa á Video og eitthvað þegar félagi minn hringir í mig og biður mig að sækja sig á BSÍ, ég hafði nú ekkert annað að gera svo ég sótti hann sótölvaðan.
Síðan þegar við erum hálfnaðir á leiðinni heim, þá segir hann að ég verði að snúa við, hann hafði gleymt Kidda, ég spurði hver Kiddi væri en hann vildi ekki segja mér það. Við komum síðan aftur á BSÍ og hann fer eitthvað bakvið og kemur aftur með einhvern plastpoka.
Ég spurði hvað væri í pokanumn en hann vildi ekki segja mér það fyrr en við værum komnir heim, svo við fórum heim til hans og hann tekur uppúr pokanum….. Risastóran Kínverskan fána!!!, ég er tala um að hann var 4x stærri en venjulegur fáni. Þá hafði hann bara farið í góðum fíling upp að Hótel Sögu og tekið fánann niður og labbað með hann í burtu.
Við prófuðum að keyra þarna framhjá stuttu síðar og það var fullt af löggum allt í kringum hótelið.
HAnn man ekki enn þann dag í dag hvernig hann fór að þessu og við komumst líka að því að hefði hann gert þetta í Kína (þetta var svona einhver sérstakur ríkisfáni, einhverjar stjörnur á honum og úr spes efni) þá er dauðarefsing við þessum glæp þar!!!
Mér finnst þetta algjör snilld…………