Það er bara ein Chloé. Þú ert búinn að sjá myndir af henni á
bikiníi með sundbolta og þú ert búinn að sjá hana á öllum
vefjum sem birta myndir af djamminu - oft. Það hefur
margsannast að hún er í miklu uppáhaldi hjá netverjum og því
rökrétt að leyfa þeim að spreyta sig á að senda henni
spurningar fyrir næsta viðtal í hinni alræmdu “Fjöldinn Spyr:”
viðtalsröð á vefnum www.undirtonar.is!
 
Reynslan af fyrstu tilraun hins gagnvirka viðtals með Jóni
Gnarr leiddi í ljós að það verður að takmarka magn spurninga
sem hægt er að spyrja hvern einstakling. Því fær hver aðili
ekki allar spurningarnar sem verða sendar inn, heldur mun
sérstök nefnd fara yfir innsend gögn og sía út sora og viðbjóð
þar til aðeins hrein og tær snilld verður eftir.

Viðtalið við Chloé verður birt á vefnum eftir tæpa viku þannig
að það er frábært ef einhver hérna á Huga.is hefur spurningu
handa henni.

Slóðin er: http://www.undirtonar.is/?i=3&f=1&o=1660