LOKSINS!!! Alvöru DJ á stórum stað!

Það eru gömlu jaxlarnir Grétar G og Agnar Tr. sem hafa tekið höndum saman
og ætla að halda tvö risa kvöld í febrúar (svo er aldrei að vita með
framhaldið..). Það gengur ekki að “Ibiza norðursins” sé alveg klúbbalaus.
Gaukurinn verður að sjálfsögðu “bífaður” upp með miklu stærra hljóð- og
ljósakerfi.

Fyrra kvöldið verður laugardaginn 9. febrúar og þar kemur fram bandaríska
house/techno hetjan Nigel Richards. Nigel er einn af skærari (og sætari)
stjörnum bandarísku senunnar og hefur að sjálfsögðu spilað allstaðar frá
Finnlandi til Tokyo. Hér fyrir neðan er linku í heimasíðuna hans og í tvö DJ sett
með honum. Ég veit ekki alveg hversu gömul þau eru, líklega 1-2 ára.

Sjáumst 9. feb!!


:: Tvö Nigel Richards DJ sett…
http://206.20.157.90/realaudio/djmix/nigel_nikita.ram
http://206.20.157.90/realaudio/djmix/sunrise.ram

:: Allar aðrar upplýsingar um kappann…
http://www.nigelrichards.com
http://www.61 1records.com (plötufyrirtækið hans…)