Það er búið að selja Thomsen. Spotlight tekur við eftir áramót.
Síðasti sjéns til að djamma almennilega á þessum kalda
klaka er næsta helgi og gamlárskvöld.

Hér er dagskráin af Thomsen.is

Föstudagskvöld
AGZILLA returns!
Íslenski NY breakbeat snúðurinn Agzilla gerir allt vitlaust í
kvöld. Ásamt honum koma fram Balli breakbeat, Atli og Ingvi.

Laugardagskvöld
LOKAKVÖLD THOMSEN
Partýið er næstum búið. Í kvöld kveðjum við Thomsen.
Staðurinn verður afhentur nýjum eigendum um áramót.
Aðalsnúðar staðarins undanfarin 2 ár fylgja honum til grafar.
Það eru þeir Árni E, Frímann og Bjössi.