Áramótapartý Smirnoff og Cult - Himnaríki & Helvíti Áramótapartý Smirnoff og Cult á Gauk á Stöng.

Smirnoff stendur fyrir svakalegu partý á Gauk á Stöng um áramótin. Þann 31. desember koma fram Sean Danke (Grétar G) ásamt Ghozt á neðri hæð staðarins. Þema kvöldsins er himnaríki og helvíti og verður neðri hæð staðarins breytt í helvíti þar sem Sean Danke og Ghozt munu sjá um tóna helvítis á meðan Kiddi Bigfoot sér um himnaríkið á efri hæðinni.

Smirnoff og Cult kynna:

HEAVEN and HELL á Gauknum, gamlárskvöld.
Englar og púkar fá djöfulegan glaðning.

Miði 2.000 kr.í forsölu. Takmarkað magn í forsölu, 2.500 í hurð.
Forsala verður á Gauknum og hefst hún föstudaginn 21. desember.