Súperstjarnan Desyn Masiello er væntanlegur hingað til lands helgina 15.-18. júní. Kappinn spilar á þremur “klúbbakvöldum” á tveimur dögum.

Stuðið byrjar á Akureyri 15. júní þar sem töffararnir í No Request fagna eins árs afmæli og halda flottasta party sem sést hefur í Sjallanum, Akureyri. Þar mun Desyn Masiello spila frá kl 00:30 til 04:00

Daginn eftir eða á Laugardagskvöldið 16. júní spilar hann á NASA í Reykjavík. Desyn spila fyrst klukkan 20:00 til 23:30 fyrir 16 ára og eldri. Aðal partýið er svo frá miðnætti til kl. 05:30 þar sem stjarnan kemur fram fyrir 20 ára og eldri!

Ásamt Desyn Masiello á NASA koma fram landslið íslenskra plötusnúða! Ghozt (Flex Music - www.flex.is) og Mr Cuellar (Barcode - www.myspace.com/barcodecollective/Velvet Ego).

Desyn Masiello kom hingað til lands 01. des 2006 og það kvöld var óformlega valið “klúbbakvöld ársins 2006” af aðdáendum danstónlistar (hugi.is/danstonlist) svo þannig að það er von á brjáluðu kvöldi 16júní!

Pumpandi dans & klúbbatónlist örugglega nálægt þér 15.-16. júní 2007

Flex Music lofar einu stærsta kvöldi ársins!

Miðsala hefst innan skamms í Skór.is (Kringlunni og Smáralind), 12 Tónum (Skólavörðustíg) og í Centró á Akureyri (Göngugötunni).

HVAR VERÐUR ÞÚ?

——
Flex Music kynnir:
Desyn Masiello á Sjallanum (ak) 15. júní og NASA (rvk) 16. júní 2007!
http://www.flex.is
http://www.myspace.com/myflexmusic
——