Skrítið samband við Keikó *sönn saga* Ég varð fyrir þessari lífsreynslu fyrir nokkrum árum á vel svaðalegu djamm tímabili þar sem ég var ekki alltaf góður strákur…



Fyrir nokkrum árum var ég á Þjóðhátíð í Eyjum, var þar í heimahúsi ásamt nokkrum vinum. Við vorum svo heppnir að við fengum að hafa helming hússins útaf fyrir okkur útaf því að pabbi vinar míns var að fara að gera upp þann hluta hússins.
Við vorum að djamma og djúsa þar einsog gengur og gerist á þessum hátíðum…

Eitt kveldið þá vorum við í Dalnum á röltinu með slatta af búsi við hönd. Við rákumst þar á nokkrar stelpur og hugsuðum okkur gott til glóðarinnar.
Þetta kvöld var mikil rigning svo allir voru í sjógöllum eða eihverju álíka sjarmerandi og sá maður bara andlit þeirra sem maður var að tala við.

Ég átti þar í löngum samræðum við stúlku sem að var ágætlega andlitsfríð og ég var svona að vona það besta, áður en ég vissi af því þá var ég orðinn einn með henni og við áhváðum að rölta aðeins um Dalinn og athuga hvort við sæum eitthvað af okkar fólki…

Eftir soldið rölt þá gáfumst við upp og við héldum í tjald pabba vinar míns sem að var svona hvítt Eyja tjald. Við komum þangað og settumst aðeins niður, spjölluðum smá og þá byrjaði fríkí stöffið…
Stúlkan byrjaði að bíta í tunguna á mér meðan við vorum að skiftast á líkamsvessum svo var farið úr smá af fötum og þá var bitið enn meira og alskyns annarskonar óþægilegar uppákomur! Ég var ekki mikið hrifinn af þessu og stakk uppá því að við færum heim til að geta verið í hlýju húsnæði. Við fengum okkur sæti í bekkjabíl og ég sá hversu ölvuð hún var svo ég var alveg viss um það að ég gæti losnað viða hana bara með smá tíma.

Við rúntum 2 eða 3 hringi þarna í bílnum og þá er hún LOKSINS dauð! Ég sá þá að við vorum á nokkurnvegin réttum stað til að fara út og ég smegi mér undan henni og kemst út. Ég var að leggja afstað frá bílnum þegar það var einhver sem vakti stelpuna og hún elti mig…
Á röltinu heim þá var hún alltaf um 20 til 30 metrum á eftir mér, en það endaði samt heima hjá vini mínum þar sem að hún náði mér og kom með mér inn.

Stelpan fór úr fötunum og þá er ég að tala um úr öllu nema naríunum og bolnum og fór umm í “stofu” þar sem við sváfum og hrundi þar á gólfið. Merkilegt nokk að það vaknaði enginn við lætin í henni! Svo kom ég upp og lagðist í svefnpokan minn fegin að hún var dauð og fór að sofa og hélt að allt væri í stakasta lagi…

Boy was I wrong!

Þegar ég var að sofna þá sé ég að þarna inní herberginu, fyrir utan vini mína og þessa stúlku kind þá er mín fyrrverandi þarna! Ekki það sem ég þurfti á að halda, ég vonaði bara að hún vaknaði ekki og sem betur fer þá gerði hún það ekki þá allavegana.

En þá náði ég að lognast útaf inní hinn “fagra” heim áfengis dauðans…

Um það bil 2 tímum seinna vakna ég við smá óp, þá var vinur minn sem að lá þarna í sófanum fyrir ofan hana að opna augun og hann lýsti því “þarna var Keikó fyrir framan mig og það í G-streng!” Það var þá sem ég áttaði mig á því hvurslags stykki þetta var sem ég hafði náð mér í!!! Þarna lá hún einsog afvelta risaskjaldbaka á gólfinu!

Við náum samt að sofna aftur þrátt fyrir þetta áfall en það var stuttur svefn…

Við vöknuðum c.a. hálftíma seinna við hroturnar í Keikó!!! Úff að ná að vakna úr áfengisdái við hroturnar úr Keikó! Það er ekki að gera sig!
Eftir smá stund þá áhvað ég að slá í öxlina á henni til að reyna að vekja hana, eða allavegana fá hana til að hætta að hrjóta, en á árangurs! Keikó lá þarna á bakinu og hélt áfram að hrjóta! Ég nokkuð pirraður og sá að það voru fleiri farnir að vakna þarna inni aðrir en ég og farnir að pirrast yfir þessu. Þá prufaði ég hið gullna trikk að klípa fyrir nefið á henni til að hún hætti að hrjóta.

Ég klíp og þögn, en hún andaði ekkert í gegnum munnin í staðin einsog tilætlað var, nei stúlku kindin var með svo mikla undirhöku að hun lokaði munninum og það fór að koma svona hálfgert ískur úr henni útaf því að hún náði ekki að anda svo ég sleppti. En nei þá kom bara enn meiri hávaði og þá voru nokkurnvegin allir vaknaðir þarna ásamt minni fyrrverandi sem var eitthvað að nöldra í mér en ég var ekki að hlusta neitt sérstaklega því ég vildi fá Keikó til að þagna svo ég gæti haldið áfram að sofa úr mér!!!

En nei ekki þagnaði Keikó!

Ég beið í smástund og kleip svo aftur fyrir nefið á henni. Það gekk ágætlega, hun allavegana þagnaði í smá tíma en þá byrjaði ískrið aftur! Ég prufaði að halda aðeins lengur nuna en ískrið hækkaði bara en hún rumskaði ekki og hætti ekki að hrjóta! Eftir að ég sleppti þá sveifluðust gluggatjöldin til þegar hún saug inn allt loftið úr herberginu með gríðarlegum látum og ég er hissa að það var enn einhver sofandi í herberginu!!!

Á þessum tíma þá var fólk orðið pirrað og farið að verða reitt og vildi fá hana út! Ég áhvað að prufa að klípa enn einusinni í nefið á henni og hélt lengi vel, ískrið var orðið jafn hátt og hroturnar og hún að verða blá í framan!!! Svo ég áhvað að sleppa svo ég færi nú ekki að drepa Þjóðarstolt okkar Keikó! Þegar ég sleppti þá komu þessi þvílíku læti að allir vöknuðu og einhvurstaðar í horninu á stofuni var vinkona hennar sem að náði að vekja Keikó og þegar hún vaknaði og uppgötvaði hvar hún var þá var hún rokin út á nærbuxunum með pollagallan í fanginu!!!

Eftir að hún hvarf út með vinkonu sinni þá sprungum við strákarnir úr hlátri, en ekki fór það hjafn vel í mina fyrrverandi og það voru einhver læti í gangi þarna í smástund en þá dóu allir bara útaf áfenginu…

Langaði bara að segja þessa raunasögu mína

Kveðja
Mr. Keikó