Pose.is - Íslenskt skemmtanalíf 10 fötur af bjór gefnar í hverri viku!!!

Það er allt að gerast hjá okkur á Pose eins og vanalega. Nú erum við komnir í samstarf við skemmtistaðinn Pravda við Austurstræti, en það er auðvitað heitasti kofinn í bænum núna. Í hverri viku stefnum við á að gefa tíu heppnum djömmurum bjórfötu, en þær verður hægt að drekka á Pravda á fimmtudögum í allan vetur. Sá háttur verður á málum, að einhver spurning eða leikur verður kynntur á síðunni og geta áhugsamir tekið þátt og reynt að detta í ískaldan öllara. Pose menn, ekkert nema partí.

Strax á morgun byrjar leikurinn og við munum varpa fram einhverri auðveldri spurningu (klárlega auðveld ef þú veist hana) sem þú getur svarað á síðunni í gegnum “Hafðu samband” og tíu heppnir einstaklingar fá gefins bjór næsta fimmtudag :)

Það er einnig margt ananð framundan og ég hvet alla til að fylgjast með okkar á komandi vetri.

Kveðja,
Hallgrimur Andri