Á laugardaginn (næst komandi 21. Janúar) verður allsvakalegt CULT-partý á Ólíver! Þetta verður án efa toppur helgarinnar en CULT-partýið byrjar klukkan ellefu og stendur til fjögur um nóttina og verða undurfagrar Cultstelpur að selja vodka í Cult og Cult shaker á staðnum svo það er um að gera að mæta snemma til að næla sér í Cult á ódýru verði og sleppa við helvítis biðröðina :)

CULT-stelpurnar verða bæði að selja hinn fræga Cult shaker drykkinn sem er að koma sterkur inn og vodka blandað í Cult orkudrykkinn. Báðir þessir drykkir eru afar spennandi og eiga ánefa eftir að láta ljós sitt skína á djamminu hérna í 101.

Cult orkudrykkurinn er arftaki Redbull en hann er í dag langöflugasti orkudrykkurinn á markaðnum á landinu og ómissandi með vodkanum en fyrir þá sem vilja halda sig í bjórnum þá er Cult sheikerinn bæði bjór og orkudrykkur í sama drykknum en þó er sheikerinn yfir 5% alcohol!

Drykkirnir verða auðvitað á sértilboði frá 23.00 til 04.00

Dj J.B.K verður með drottningu í búrinu og þeytir skífum langt fram eftir morgni.

Ég mæti án efa tímanlega og svooolgra í mig Cult orkudrykkinn mínus vodka því ég er í átaki en þið hin gerið það eflaust ekki :)

Myndir frá partýinu koma inn strax á sunnudaginn á http://www.Ímynd.is

over and out!
Hallgrimur Andri