Electro á club 22. Undanfarin misseri hefur hljómur electró tónlistarinnar farið mikinn innan danstónlistarinnar. Það er eins og electró bakterían hafi náð að festa klær sínar í fleiri og fleiri undanfarin ár, enda fjölmargir plötusnúðar farnir að læða rafpúkum í settinn sín. Þeir Exos og DJ Árni Sveins þurfa hins vegar ekki að fara laumulega að á Café 22 fimmtudagskvöldið 26. júlí. Þá mun einfaldur og þrykkjandi ryðmi electró tónlistarinnar nefnilega fá uppreisn æru á sérstkakri Electro Session samkomu.

Segja má að Electro Session-ið sé nokkurskonar tilraun. Ef til vill er hér á ferð fyrsta og eina electró kvöldið í Reykjavík í seinni tíð, en ef vel tekst til verður leikurinn eflaust endurtekinn. Á samkomunni mun DJ Árni Sveins að mestu halda sig á old skool tippinu og spila elektró músík frá gamla tímanum. Exos býður hins vegar bæði með nýja og gamla tóna í pumpandi electrofunk herferð.

Electro Session-ið hefst klukkan 21:00 og stendur til 02:00. Miðaverðið er 500 krónur og aldurstakmarkið er bundið við 18 ár.

-www.reykjavik.com- -djamm-