Glamúr á Ozio. Glamúr er nýr glæsilegur þáttur á Skjá einum sem er sýndur rétt fyrir djammið á laugardagskvöldum. Stelpurnar, Arna og Rakel, eru orðnar svo vinsælar að búið er að gera geislaplötu með uppáhaldslögum þeirra eins og Sílikon og Johnny National gerðu við mikinn fögnuð aðdáenda.

Næsta laugardagskvöld verður haldið útgáfupartý fyrir þennan nýja Glamúr disk sem settur er saman af Margeiri og Barða í Bang Gang. Þess má til gamans geta að Margeir var nýlega kosinn vinsælasti plötusnúður Reykjavíkur á reykjavik.com og Barði er stjarna í Frakklandi.

-reykjavik.com- -Djamm-