Það er sveitaball á laugardagskvöldið í Miðgarði og ég ætla pottþétt að mæta. Það er alveg sama hvað… það er alltaf geðveikt á böllum í Miðgarði, þó að maður þurfi að keyra í 3 tíma. Hvað er það fyrir gott djamm!!! Það er aldrei eins mikið fyllerí og fjör eins og í Miðgarði. Svo er bara 16 ára aldurstakmark :) Ég meina… hver hefur ekki gaman af smá lambakjöti thíhíhí….(hvort sem maður er kk eð kvk).
Maður skellir sér bara á tjaldstæðið fyrir neðan, fer í sund, og grillar síðan með öllarann í annarri og rettuna í hinni. Ég og vinkonur mínar ætlum síðan að fara á Sunndeginum (að sjálfsögðu seinnipartinn, maður verðu að sofa út) í rafting í Austari Jökulsá. Hún er víst geðveik!!! Mér sýnist það alla veganna af myndunum af heimasíðunni
www.rafting.is
Ég heyrði að Rammstein fór víst í þessa á.
MÆTUM ÖLL Í MIÐGARÐ!!!!