Það er mikið búið að vera talað um þessa líka gríðarskemmtun. Allir í Þórsmörk 1. Helgina í Júlí. Yey gaman gaman..
En þá kemur spurningin sem eflaust margir eru ekki vissir á.. Hvenær er 1. Helgin í Júlí.. er það núna þessa helgi.. eða er það næstu helgi?
Allmargir ætla núna þessa helgi, en í raun er það ekki 1 helgin.. vegna þess að 1. Júlí er sunnudagur svo það er í raun síðasta helgin í Júní.. svo helgin þar á eftir er 1 helgin í Júlí.. annars væru 5 helgar í Júlí!
Svo ég spyr ykkur kæru landar.. Hvenær er 1 Helgin í Júlí og hverjir ætla í Þórsmörk og hvora helgina??