Ég veit ekki hvernig hið fullkomna djamm er eða hvort það sé eitthvað slíkt til.
En ég var að hugsa um hvort einhver gæti deilt með öðrum sínum bestu djömmum.
Sérstaklega nú þegar sumarið er að koma og það vantar góðar hugmyndir sem innihalda eitthvað annað en bara að fara í bæinn eða standard partý.

Böll, partý og skemmtistaðar minningarnar mínar renna allar saman en flest partý sem gerast svona spontaneus eru mesta snilld og minningin frá þeim er brennd í sál mína að eilífu.

Er einhver með einhverjar góðar minningar frá sumartíma sem hann/hún gæti deilt með og þar af leiðandi leyft öðrum að upplifa Alvöru Djamm?

Ekkert gaman að vera ælandi og ógeðslegur/ógeðsleg niðri í bæ.
En að vera nýkominn úr Hvítá-Riverrafting og fara að grilla og drekka bjór í 10 manna hóp er eitthvað sem gleymist seint.