Hæ, langaði bara að lýsa brjálaðasta og skemmtilegasta djammkvöldi sem að ég hef upplifað.
Þetta var svona eins konar busavígsla nema hvað ég bý í Svíþjóð (Malmö) og þetta er nokkuð öðruvísi hérna. Það er þannig að það eru þrír bekkir sem að fara í þetta á hverju föstudagskvöldi, okkar bekkur fór síðasta föstudag, og þetta voru alls konar leikir og keppni. Fyrsta keppnin var þannig að það var fyllt box (örugglega svona 5 lítra box) með einhverri viðbjóðslegri áfengisblöðru, gamalt viský, bjór og meira að segja mjólk :(.
Einn í einu úr hverjum bekk átti að hlaupa að sínu boxi (um það bil 100 metrar) með sogrör og drekka eins mikið og maður gat uppúr þessu, hlaupa svo til baka og láta næsta úr bekknum hafa rörið. Sá bekkur sem var fyrstur búinn að tæma boxið vann og fékk 10 stig. Þá voru nokkuð margir orðnir fullir og þess vegna gat maður haldið áfram að gera brjálaða hluti eins og næsta þraut sem var að reyna að mynda eins langa línu og hægt er með fötunum mans, þannig að allir voru bara á nærbuxunum í endanum og stelpurnar á brjóstarhaldaranum og G-strengnum.
Á meðan þetta var voru 3ju bekkingarnir að kasta eggjum á mann.
Svo var önnur þraut þar sem maður átti að sleikja rjóma af maganum á annari manneskju.
Önnur þraut var þannig að það var epli í boxi sem var fullt af pastasósu, áfengi og einhverjum vibbanum og einn í einu átti að hlaupa og stinga hausnum sínum ofaní boxið og taka bita af eplinu (3ju bekkingarnir ýttu hausnum manns ofaní þetta og spældu egg á hausnum :D). Ógeðslegasta þrautin var án efa þrautin sem að ég reyndist vera eini strákurinn í því að allir hinir flúðu.
Brotið var egg uppí munninn á einni stelpu sem átti að senda eggið uppí næsta munn, og næsta til næsta og allan hringinn. Síðasta manneskjan átti svo að kingja egginu.
Þetta var ótrúlega gaman og líka djammið og fylleríið eftir þetta sem var í stórum allmenningsgarði hér í Malmö. Maður hitti á fallega stelpu og sá aðrar manneskjur verða að kærustupörum. Ótrúlegt non-stop partý sem ég gleymi aldrei!!!

Kv. StingerS