Hvenær ætlar einhver athafnamaður/kona að opna singles bar( bar þar sem aðallega einhleypir sækja). Sem einhleypur karlmaður heimta ég að það komi svona staður og það strax. Ég hef lent alltof oft í því að reyna við einhverja stelpu á bar/skemmtistað sem er með strák, og það versta er að sumar stelpurnar bíða með að segja manni að þær séu með strák, og maður er búin að splæsa a.m.k tvo drykki og segja allar sínar skemmtilegustu sögur. Mig rámar í það að einhver ætlaði að koma með svona singlesbar um daginn en hafi hætt við á seinustu stundu.
Hvað finnst ykkur? Einhleypt fólk væri ekki svoldið næs að hafa einn svona stað til að forðast vandræðalega viðreynslu.

Cactuz-