Aaron Carl @ Breakbeat.is @ Kapital 040304 Bandaríski tónlistarmaðurinn Aaron Carl (mynd) verður sérstakur heiðursgestur á næsta Breakbeat kvöldi, þar sem hann mun taka sér hlutverk MCs ef svo má að orði komast. Á lokahnykk Breakbeat.is á Iceland Airwaves í fyrra tók Aaron hljóðnema í hönd og vakti mikla lukku allra viðstaddra. Þótti það takast svo vel upp að ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn nú 4. mars á Breakbeat.is kvöldinu á Kapital.

Þar mun Aaron Carl stíga á stokk ásamt plötusnúðum Breakbeat.is þeim Gunna, Kalla og Lella og er von á hörku tjútti að hætti Breakbeat…

Breakbeat.is @ Kapital
Fimmtudaginn 4. mars kl. 21-01
Aaron Carl
DJ Gunni Ewok
DJ Kalli
DJ Lelli
500 kr. inn | 18 ár | Skilríki skilyrði