hæhæ!!! ég var ekki viss hvar þetta ætti við, en ég setti það bara á djammið!

Sko! Ég er bara 15 og enginn staður er til á þessu landi sem ég og vinir mínir getum farið á um helgar og þannig. En ég meina okei, þeir mundu fara á hausinn og þannig ef áfengi væri ekki selt….og það finnst mér að foreldrar eigi að gera sér grein fyrir, þ.e. að manni langi nú kasski til að skemmta sér þó marr sé ekki orðinn 22 ára eða e-ð, og eini möguleikinn er því að fara í partý, ekki satt???

OK, þá ætti vandamálið mitt að vera leyst, en heldur betur ekki!!! Þar sem ég er mikið í íþróttum hef ég engan áhuga á að reykja né drekka, og pabbi ætlar að gefa mér gemsa og inneygnir þangað til ég verð 18 ef ég geri hvorugt…fínn díll :) Seinustu 4 ár hef ég alveg staðið við mitt og allt mitt líf hef ég aldrei gert neitt af mér….sem mamma og pabbi gætu haft á móti mér (ok að gista hjá vinkonu og fara svo út um nóttina með henni nokkrum sinnum og þannig, en ég meina það hefur engan skaðað hingað til)!!! Svo segja mamma og pabbi að þau treysti mér alveg 150%, og svo bað ég um að fá að gista með vinkonu minni næstu helgi, þar sem hún ætlar að halda gott partý og ég mundi aldrei fá að fara, en núna fæ ég ekki einu sinni að gista þar!!! hvað á ég að gera??? segja að ég sé að fara í partý e-s staðar (þau mega ekki vita að hún sé að halda partý, þá fæ ég aldrei að gista hjá henni)???? ég meina mig langar bara í gott partý, skemmta mér langt fram á kvöld…ég meina ég ætla ekki að gera neitt af mér, þótt audda verði mikið drukkið og þannig, þá tek ég ekki þátt, þarf að fara að vinna næsta morgun!!!

PLZ…nenniði að gefa mér góð ráð???? ég þarf það svo mikið, ég er verulega að pæla í að fara að heiman, og hef oftar en 10 sinnum farið út með bakpoka en sný alltaf við því það er of kalt eða ég er svöng eða e-ð, hehe!!! en endilega gefið mér öll ráð, skittir engu hvað það er…bara plz áður en ég sturlast!!! gott væri að fá að vita hvað þetta fullorðna lið hugsar…ef það er e-r þannig hérna…
Fyrirfram þökk…….HUNANG……LOVE, PEASE AND NUDITY!!!