Ég skil ekki hvað fólk fær útúr því að ráðast á annað fólk á djamminu niðrí bæ..
Frændi minn er hommi, Það réðst á hann eitthver gaur vegna þess að hann sagði að frændi minn hefði horft á sig.. Sem er bara hallærislegt, frændi minn var þarna með kærastanum sínum að skemmta sér… Frændi minn nefbrotnaði!
Annar frændi minn.. sem er hjúkrunarnemi, lenti síðan líka í slagsmálum um dagin.. gaurar fóru að ibbast uppá vin hans sem sat bara og var að fá sér kebab eða hvað það heitir.. Frændi minn reyndi að róa gaurana niður svo þeir réðust bara á hann í staðin!
Og svo er það maðurinn hennar Ömmu minnar!!
Hann er næstum 2 metrar á hæð og 100 og eitthvað kíló.. stór og mikill maður… Sendiherra… hann og Amma mín voru hér á íslandi og fóru út að borða um helgi.. röltu síðan í gegnum miðbæjinn á leiðinni heim… en nei nei þá kemur eitthver lítill væskill og byrjar að ybbast uppá hann…. (sennilega helmingi minni í báða staði).. en maðurinn hennar Ömmu er nú með munninn fyrir neðan nefið og hann tjáði sig bara.. svo Strákurinn vissi ekkert hvað hann átti að gera.. svo hann hljóp í burtu..

Er virkilega til svona mikið af fólki sem getur ekki farið í bæin án þess að böggast í öðru fólki.. eða er þetta kanski djamm hjá sumum.. að fara í bæinn og bögga bara næsta mann..?

Það eru nú til miklu verra mál en þessi.. þetta er bara smámál í sambandi við margt sem hefur gerst!