ég man í fyrsta skiptið fyrir svona 3 árum þegar ég fór að drekka,með Cradle of filth í eyrunum(ferðageislaspilari fyrir þá sem eru freðnir),með vodka,coke og Smirnoff Ice í skólatöskunni á bakinu og var á leiðinni til félaga míns og frænda hans:Stjáni bjúga og Arnar nautahakk..og við vorum að fara að blanda,drukkum fyrst bjórinn,ég hringdi í mömmu og sagði að ég ætlaði að vera hjá Stjána yfir nóttina yfir nóttina með popp,kók og Star wars!

Síðan fóru við út og lögðum að stað niðri í bæ,hittum þar einhverja krakka,fórum í eitthvað partý þar sem bara sýruhausar eru og voru síðan með eitthvað bögg,Arnar kom síðan með bjórflöskuna og barði í hausinn á andstæðingnum og allt varð brjálað og við drulluðum okkur í burtu,út úr þessu Sýrubæli!

Við hittum síðan einhverjar gellur og fórum í nýja húsið mitt sem foreldar mínir eru að gera upp og ég fór inn um gluggann og opnaði fyrir þeim og síðan bauð ég öllum inn og setti “From cradle to enslave” með COF í botn og ég var að fíla mig í klessu,síðan komu pirraðir nágrannar meðan ég var að fá mér í einn feitan og ég var bandbrjálaður og grýtti öruuglega heilli kippu út um gluggann(ekki allt búið)og slettist á einn gaurinn og síðan komu löggufjandarnir og pabbi og við pilluðum okkur bara í burtu,nú voru það bara við þremenningarnir einir út í óvissunni,labbandi kófdrukknir og kengbeyglaðir og eina sem ég var með var botnfylli af vodkanum og hálf sígaretta..


Síðan löbbuðum við framhjá bókasafninu og þar henti ég flöskunni og Stjáni fór allt í einu að hlægja,ég fattaði ekki neitt,þá var ég með buxurnar á hælunum og stelpuhópurinn var að horfa á mig en ég reif bara sprellann út..

..og síðan man ég ekki meira neitt þangað til ég vaknaði í snjóskafli og Stjáni var að banka á glugga hjá Elínu og ætlaði að kissa hana góða nótt en enginn svaraði,síðan fer hann til Rakelar og sparkar í hurðina hjá henni og mamma hennar kemur til dyra en hann tekur bara utan um hana og gefur henni einn blautan rembingskoss..eitthvað sem mig langaði ekki að vera vitni af!

Síðan hittum við einhverjum stelpur,ég stend þá loksins upp og tek utan um þær allar og segist elska þær…oki þarna var gjörsamlega alveg út úr heiminum!

Síðan komum við heim til hans eftir að hafa verið á einhveju trippi út um allan bæ og þar kemur mamma hans til dyra og ég míg í stigaganginn hjá honum og sný mér síðan við og sest síðan niður,Arnar var minnst fullur en ég og Stjáni vorum á rassgatinu.
Stjáni kemur svo út skríðandi á nærbuxunum og sest við hliðina á mér og við tökum að syngja nokkur lög eins og Stál og hnífur og Sjóhatturinn!

Síðan er hringt í mömmu og ég kannaðist ekkert við þetta undarlega fólk þegar það kom,kýldi pabba í fésið og hljóp út og settist í bílinn og reyndi að starta honum en komst að því seinna að það voru engir lyklar í honum,síðan koma þau og henda mér í aftursætið og keyra í burtu,síðan kemur Stjáni hlaupandi út á götu á nærbuxunum,valhoppandi og veifandi bless og þar með lýkur yndislegu fyllerískvöldi,ég fílaði þetta þá en ég segi bara núna:ÞETTA ER RUGL!!

Ég fæ mér bara frekar feitan reyk og slappa af og læt mér líða vel heldur en að vera að væblast úti í kuldanum kengfullur!
Síðan daginn eftir fer ég í bíó…



no picture sorry
hafiði það skítt..
My name is Earnie Douglas but my friends call me Chip