í gær fór ég og vinkonur mínar á djammið, og allt var voða gaman þangað til að gamall kall milli 60-70ára, kom og fór að segja vinkonu minni hvað honum finndist hún falleg, ég sat niðri með bakið í hann og hann fór að rekast í mig og ég leit við þegar ég sé þennan mann með svona ógeðslegt auganráð ekki þannig að honum væri illa við okkur heldur eins og hann girntist okkur,(HROLLUR) ég byrja að pikka í hann og bendi honum að láta okkur í friði, en hann gerir það ekki heldur snýr sér að mér og fer að segja mér að vinkona mín hefði sagt við sig að hún vildi að hann klæddi sig úr nærfötum(AS IF????) ég sá hvernig hann sagði þetta eins og hann nyti hvers augnabliks(ógeð) jæja allavega þá segi ég honum að í fyrsta lagi þá væri það ekki möguleiki og í öðru lagi, hvers vegna í ands….. hann væri að segja mér það????????? og bið hann vinsamlegast að láta okkur í friði(við vorum fimm stelpur) og svo förum við upp að dansa og kallinn fer að dansa líka með einhverjum yngri manni nálægt okkur, svo kemur að því að hann fer aftan að systur minni og tekur um mjaðmir hennar og nuggar sér upp við hana, sem betur fer erum við fljótar til og ýtum honum í burtu og hótum honum öllu illu, en sagan endurtekur sig nokkrum sinnum, ég var orðin bálíll út í helv…. kallinn og rek hann í burtu og þar á meðal bið manninn með honum að fara með hann í burtu, að lokum fór hinn, öfugugginn ætlaði ekkert í burtu en að lokum vildi hann ekki týna hinum, svo hann fór sem betur fer!!!!!!!!!!!!!!!!!!
en verður fólk yfirleitt algjörlega siðlaust með víni!!!
þetta var hræðilegt og ég sé eftir því, að hafa ekki gefið mitt besta skot þá meina ég kýlt hann kaldann helv…. ógeðið.
ég mun aldrei sætta mig við svona dónaskap aftur ef ég sé hann aftur einhvern tímann og veit hvað hann heitir þá mun ég kæra hann fyrir áreitni.

virkilega virkilega virkilega REIÐ

HONEY