Body-tekíla Tekíla (eða “tequila” eins og það er skrifað á ensku) er mjög skemmtilegur drykkur. Allir vita auðvitað hvað hann er góður með salti og sítrónu og sumt fólk drekkur hann beint án aukaefna. Hann má nota í bland og kokkteila og áhrifin eru alltaf á einn veg: Léttgeggjuð ölvun.

Í íslenska djamm-menningu vantar samt að fólk geri sér að fullu grein fyrir því hve skemmtilegur þessi drykkur er. Ein leið að slíku marki væri ástundun hinnar göfugu iðju: Body-tekíla.

Body-tekíla þekkja flestir og í versta falli af afspurn. Skilyrði body-tekíla eru fullkominn hressleiki og aðgangur að tekíla, salti, sítrónu og líkama annarrar manneskju. Takmörkin eru engin. Salt er sett á líkamshluta manneskjunnar og sítrónan í munn hennar þannig að hægt sé að bíta í hana og ná þannig safaríkum sítrónusafanum í sig. Saltið er síðan sleikt af manneskjunni, tekílað drukkið og sítrónan loks bitin úr munni. Þetta er auðvitað bara almenna línan. Sjálft tekílað má drekka úr nafla svo dæmi sé tekið um afbrigði frá almennu línunni.

Af hvaða líkamshluta á að sleikja saltið af? Góð spurning en svarið er valfrjálst. Karlmönnum finnst gjarnan gaman að sleikja saltið af geirvörtu kvenmanns, á meðan kvenmaður skemmtir sér betur við að sleikja af getnaðarlim karlmanns (með þeim fyrirvara að salt sé ekki að leika um viðkvæma hluta hans). Geirvörtur og getnaðarlimir eru afskaplega hentugir líkamshlutar fyrir body-tekíla. Háls sömuleiðis en hálsinn hefur ekki sama yfirbragð yfir sér. Kirkjulegasti líkamshlutinn er svo auðvitað handabak eða úlnliður annarrar manneskju. Fáir leggjast svo lágt.

Hvað er svona gaman við body-tekíla? Þessu þarf varla að svara. Body-tekíla er mjög góð leið til að bindast böndum við annað fólk, af báðum kynjum. Hvað er persónulegra en að sleikja geirvörtu vinarins eða vinkonunnar? Ölvun er einnig skemmtilegur fylgifiskur. Body-tekíla getur því sameinað bæði vináttubönd og áfengisneyslu á þennan líka ljómandi vinalega hátt.

Ég vil mæla með því við alla sem þetta lesa að skreppa í ÁTVR fljótlega og kaupa eins og eina stóra flösku af tekíla og hafa með sér auk salts og sítrónu í næsta teiti þar sem fólk er í hressari kantinum. Body-tekíla er áhættulaus og bráðskemmtileg iðja og ósköp saklaus ef fólk er afslappað og ekki að springa úr sjálfumgleði, feimni, hroka, pjatti og alvarleika.