Ice Ventura #3: Lisa Loud Sælir hugarar.

Enn ein helgin, enn eitt djammið… ohhh nei ég þreytist sko aldrei á þessu :)

Núna er það viðbót við Ice Ventura partýið. Seinasta helgi böstaði gjörsamlega feitan múv á Gauknum, þökk sé hinum frábæra PPK (Sergey Primenov)! Þið sem mættuð ekki, aumingja þið, því þið misstuð sko sannarlega af góðu kvöldi. En er ekki bara málið að bæta sér það upp?
Núna á föstudag kemur bretinn Lisa Loud aftur til okkar til að spila fyrir okkur á Gauknum.

Gamanið byrjar kl 23.30 þar sem hinn svokallaði dj Batman byrjar að hita upp húsið… btw, er einhver sem veit hver það er? Er þetta kannski bara dude með grímu?? :)
En allavega, svo tekur Lisa við og heldur partýinu gangandi framm á morgun.
Miðaverð er 1500 kr við hurð en fá kvennmenn frítt inn til kl 01 svo nú er um að gera að drífa sig bara og draga kallana með :)

Sé ykkur þar.. :)

kv,

LadyJ