Ok, ég er rosalega sérstök, en mér finnst það bara alltí lagi þegar strákar eru aðgangsharðir og vilja káfa á manni……ég læt það að minnsta kosti ekki fara í taugarnar á mér og tek þátt í því. Ég bara káfa á þeim á móti. Ég meina þetta er bara leikur og það er um að gera að hafa bara gaman af honum, en ekki láta þetta pirra sig. Það eru svo margir á djamminu sem eru að leita að einhverjum eða einhverri(ég er persónulega ekki að því sjálf þar sem ég á mann) og hvernig í ósköpunum eiga þeir sem eru að leita að vita það hverjar eða hverja er óhætt að nálgast og hverja ekki? Jú, þeir verða að prófa sig áfram. Og á dansgólfinu, ég meina eðlilega reynir maður að dansa við þann sem er álitlegur og það er ekkert eins skemmtilegt og smá dirty dancing!! Eða það er amk mitt álit.
Úff, ég mundi sko ekki bjóða í það ef ég væri á lausu, þar sem þetta er mín skoðun og ég á mann!! He,he,he! Bara að hafa gaman að þessu. Ég meina, vá, ég er með flott brjóst, og flottann rass þannig að ég skil það ósköp vel að karlmenn vilji fá að snerta, ja og kvennmenn líka ef því er að skipta!