Jæja ég ætla að deila svolitlu með ykkur sem er að pirra mig svolítið…Ok ég var á djamminu í gær(föstudag) og ég verð að segja að ég er alveg rosalega hneyksluð! á íslenskum strákum!! Ég ætla ekki að setja ykkur alla undir sama hatt en ég verð að segja að flest allir karlmenn sem ég hitti á skemmtistöðum eru ALGJÖRIR dónar :( (sorry til góðu strákanna:)

Jíísss!! Ég meina hvað er að svona gaurum?!?! Sko ég og vinkonur mínar vorum ekki búnar að vera þarna lengi þegar ég fer á barinn og einhver ungur maður heldur bara að með því að standa þarna við hliðina á honum þá hafi ég verið að bjóða honum að slefa yfir mig og klípa í brjóstin á mér!!Ég meina commonnn!! Ekki hélt hann að eitthvað svona virkar á stelpur!!?!?
Svo fórum við að dansa og já það komu einhverjir gaurar að dansa við hliðina á okkur og það var bara í fínu lagi nema einn gaurinn birjaði að dansa frekar nálægt mér með eitthvað sem átti að vera “sexy” augnráð þannig að ég sný mér frá honum…var ekki dónaleg eða neitt bara gerði þetta voðalega pent!!
Þá birjar gaurinn að strjúka á mér rassinn eins og ég hafi ekki gert neitt annað undanfarin ár nema að bíða eftir því!!!VÁ!!
Þannig að ég gaf honum það skírt til kynna að ég væri ekki með NEINN áhuga á honum þannig að á endanum fór hann..sem betur fer :)
Jæja sagan er ekki búin…Jæja svo fer ég samferða heim í leigubíl með vinkonu minni og einhverri “hjásvæfu” hennar og alltílæ með það þau voru eitthvað búin að vera að kyssast og eitthvað nema hvað svo fer gaurinn bara að reyna við mig við hliðina á henni!!!Birjaði að koma við brjóstin á mér og reyna að kyssa mig!!Og ég bað hann um að hætta þá segir hann: Þú fílar þetta,þú veist það!!COMMON!!!!!
Ég meina hvað fer í gegnum hausinn á strákunum þegar þeir haga sér svona eins og fífl…Ekki haldið þið (þeir taka þetta til sín sem eiga) að stelpur fíli svona yfirgang og frekju?? Ég er mest hissa á að þeir fái nokkurn tímann eitthvað gott í kroppinn með þessari aðferð allavega er eitthvað mikið að stelpum sem falla fyrir þessu!!

Allavega vildi ég óska þess að hitta einhvern með smá vott af kurteisi ekki svona dóna :)
Eru þið einhvern staðar til???

Sorry varð bara að deila þessu með ykkur :)
Stelpur hvað finnst ykkur…eru þeir flest allir svona??

Bæó :) *knús*
Stelpan