Sko ég hélt að þetta að fara að djamma væri að mar færi út að skemmta SÉR. Ekki að mar færi út fyndi einhvern sem færi í taugarnar á manni, einhvern sem mar gæti sett útá og skrifað grein um á huga!
Þegar ég fer á djammið er það vegna þess að mér finst það skemmtilegt, ég er þar til þess að hafa gaman af. Ég fer ekki að djamma til þess að geta farið að leita af fólki sem; klæðir sig öðruvísi en ég, fólki sem hefur drukkið of mikið og er þess vegna ælandi útí horni.. eða fólki sem bara eru einfaldlega ekki eins og ég vil að það sé!

ég hélt að þetta “að fara að djamma” þýddi einfaldlega að mar væri að fara út að skemmta sér.. er það kanski bara miskilningur hjá mér…?

EF fólk getur ekki farið á djammið öðruvísi en að setja út á aðra.. þá er engin tilgangur fyrir það að fara að djamma! Reyndu nú að brosa aðeins logger minn og hættu þessum barnaskap!
Segðu heldur frá einhverju skemmtilegu sem hefur gerst þegar þú ferð að “skemmta” þér eða átt leið um í kringlunni eða eitthvað!