Hvað er nú þetta með að fólk heldur að bjór og annað áfengi geri fólk leiðinlegt, hallærislegt og blind fullt.

Ég er þeirrar skoðunar að það sért þú sjálfur sem gerir þig fullan sumir verða jafnvel háðir, en ég verð að segja að það fer allt eftir fólkinu sem drekkur áfengið, fólk verður að þekkja sín takmörk og hafa stjórn á drykkjuni.

Sjálfur get ég farið á djammið og skemmt mér frábærlega án áfengis jafnvel þó að allir félagarnir séu í glasi, mér fynnst algott að geta bara farið útí bíl eftir djammið og keyrt heim alsgáður.
Samt fæ ég mér stundum í glas og hef gaman af því svo framarlega að ég drekki ekki allt of mikið (jújú það hefur nú komið fyrir).

En ég vona að allir hér hafi einhvern tíman farið út að skemmta sér án áfengis því það er sérdeilis prýðilegt.

Með Thulekveðju
vallip