Ég ætla að segja ykkur frá smá sem geriðst fyrir mig einu sinni þegar eg var a djamminu!

Ég og vinkona min vorum eitt sinn fyrir ekki svo löngu síðan niðrí bæ á djammið!
Við lögðum á stað um 11 leytið og vorum bunar að drekka smá!
Við fórum á gaukinn og vorum bara í góðum fíling, en orðnar svolítið þreyttar eftir að hafa dansað á milljón þegar við ákváðum að taka okkut smá breik og setjast aðeins niður! Vinkona mín kveikti sér í sígó og sat þarna drulluþreytt að reyna að safna saman einhverjum kröftum til að dansa meira!

Þá allt í einu komu 2 gellur alls ekki ljótar að tala við okkur!
Við vorum búnar að tjatta við þær í smá stund þegar ég tók eftir því að önnur gella var að káfa á vinkonu minni á milljón!
Vinkona mín var ekki beint að fíla þetta því hún er ein mest straight manneskja sem ég þekki!
Hún hefur samt ekkert á móti samkynhneigðum, en var samt ekkert að fíla þetta!
Stelpa var bara að reyna á fullu að fá vinkonu mína til koma með sér og var alltaf að spyrja hana hvort hún væri ekki bi og segja henni hvað hún væri fallega vaxin!
Við vorum farnar að vera svoltið hræddar þannig að við létum okkur bara hverfa!

Við djömmuðum þarna smá lengur en vorum orðan svo þreyttar að ég hringdi í kærastann minn (hann er reyndar X núna) og bað hann að koma að sækja okkur!

Hann sagðist ætla að koma og við biðum og biðum!!! Svo eftir svona 2 klst. vorum við orðanar mikið pirraðar og að drepast úr hita!
Ég hringdi í kallinn og þá var hann á leiðinni þannig að við fórum út til að kæla okkur!
Ég var að drepast í fótum og hún líka þannig að við fundum okkur ágæta tröppu til að sitja á! Við sátum þarna í rólegheitum þegar ógeðslegur pissfullur gamall kall kom og var að reyna við mig á milljón!!
Ég var ekki beint í góðu skapi og ekki vinkona mín heldur og þetta var beint ekki eitthvað til að bæta það!!!
Kallinn byrjaði eitthvað að halda utan um mig og bjóða mér 4000 kall til að koma með sér í leigubíl og svo heim til hans!!! OJJJJJJ!!!
þarna var ég sko komin með guppuna og vinkona mín líka! Hún öskraði á hann og sagði honum að drulla sér í burtu!
Hann fór en eftir svona 5 mín. kom hann aftur og byrjaði á sama kjaftæðinu aftur!
Vinkona mín var orðin svo pissed þá að hún réðst á hann og sagði honum að F***ing drulla sér og ekki koma aftur!

Hann fór en svo koma hann aftur og þá var ég brjáluð og við öskruðum báðar á hann og þá lét hann sig loksins hverfa, thank god!