OK, ég held að það séu nokkrir sammála mér um skemmtistaði miðbæjarins, þeir eru alltof fáir, alltof dýrir, alltof líkir! það skiptir ekki máli hvort að þú sért á Nellys eða Astró, Prikinu eða circus þetta er allt sami hluturinn! Hvernig væri nú að láta hendur standa fram úr ermum og stoppa þetta brjálæði?!
Eg meina, þegar maður er búnað vera virkur djammari í miðbæ rvk, þá fer manni að hundleiðast svo mikið og kominn með feitt ógeð á öllum sömu gömlu og úreltu skemmtistöðunum, að maður þarf að fara til annara landa til að fá ærlegt djamm og geta skemmt sér vel!!
Miðbær rvk er að fara í ræsið, og þið djammarar góðir beint með!!
ég held að það sé löngu kominn tími til að breyta þessu ef að dagar djammsins eiga ekki að verða taldir….

kveðja Sara