Þökkum kallinum fyrir gott starf og fleira. Kannski frekar tilgangslaus tilkynning en vil nota tækifærið til að þakka Nedved, hinum mikla knattspyrnumanni, fyrir að halda um þetta áhugamál með Xavier, BessiB og mér, núna síðast, í langan tíma.

Ég veit ekki alveg hversu lengi hann stjórnaði hér en hann hefur gert það með sóma og skilur áhugamálið eftir handa mér og Xavier í frábæru standi.

Svo vil ég nýta tækifærið og þakka öllum sem hafa verið að sækja áhugamálið núna síðustu mánuðina. Ég er alltaf að sjá ný og ný nöfn og höldum þessu áfram. Við getum stækkað enn meir og með enn fleirum greinum, þráðum, myndum og skoðunarkönnunum getur áhugamálið stimplað sig í topp 15.

En vil einnig nefna það að það er lítið í bið hjá okkur Xavier. Það jú koma oft greinar en það vantar fleiri skoðunarkannanir og myndir. Núna þegar Febrúar er að líða og Mars tekur við þá skulum við nýta þann mánuð í gott átak og henda inn fleirum greinum og fleirum myndum ásamt skoðunarkönnunum.

Sjálfum finnst mér áhugamálið vanti eitthvað en ég veit ekki hvað. Ef ykkur dettur eitthvað í hug, skiptir engu máli hvað þá er ég tilbúinn að hugsa málið og ræða við meðstjórnanda minn.

Held að það sé ekkert meira í bili.
kv Heiða