Tölur Desembers og 2006! Jæja þá eru tölurnar komnar inn. Erum í 22. sæti ef við teljum forsíðu, ego og háhraða með. Við erum með 62.192 flettingar aðeins 190 flettingum eftir /cod sem er fyrir ofan okkur. Þetta er mikil bæting frá síðasta mánuði en hann var með 45.755. Þetta er prýðilegur árangur enda skemmtilegur Desembermánuður afstaðinn.

Einnig komu tölur 2006. Þar sitjum við sem fastast í 32 sætur. Þá tel ég fyrrnefndu áhugamál ásamt static með. Erum með 437.315 flettingar. Meðal flétting hvern mánuð er 36.443 svo Desember mánuður var glæsilegur. Við erum að bæta meira og meira í okkur enda held ég að meðalaldurinn hér sé að hækka og við það fara fleiri að hafa áhuga á þessum spennandi málefnum.

Verum ennþá duglegri í Janúar en við vorum í Desmber og komum okkur ofar á þennan lista. Ég hvet alla til að senda inn myndir, skoðanakannanir og tala nú ekki um greinar. Það er ekkert sem er í bið svo feel free.

Bara áfram deiglan whúhú!