Heil Harry! Ég er nú ekki að spamma myndum hingað, en þessi fannst mér of góð til að sleppa :)

Það þótti mörgum kaldhæðnislegt að fréttin um að Harry prins væri að fara til Íraks, kom nánast sama dag og Blair tilkynnti að fækkað yrði verulega í liði Breta þar. En allt á sínar eðlilegu skýringar…

(Fyrir þá sem ekki muna, komst prinsinn í bresku götupressuna fyrir 2-3 árum síðan fyrir að setja upp nasista-handleggsband á einhverju skóladjammi)

Myndin er tekin af http://www.filibustercartoons.com/index.php
_______________________