Það er ekki sama sem merki á milli fordóma og vanþekkingar. Ég segi aldrei að ég hati þjóðina og ég auglýsi það ekki þar sem fordómafull manneskja fær varla að tjá sig lengur. Allir hætta að hlusta á það sem einhver hefur að segja ef hann er fordómafullur.
Ég segi aldrei neitt fordómafullt í garð BNA og ég auglýsi fordóma mína á þeim ekki neitt. Eina ástæðan fyrir að ég nefndi þá var að Skuggi spurði mig persónulegarar spurngingar og ég svaraði henni.
Sumir hafa óbeit á tölvunördum þó það sé fullt af skemmtilegum tölvunördum til. Sumir hata homma, aðrir Handboltagaura.
Maður má varla hafa óbeit á neinu án þess að taka tiltekið fram hvaða einstaklinga úr hópnum manni líkar ekki við.
Reynsla mín á BNA og þeirra þjóð er bara því miður þannig að mér líkar ekki við þá.
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig