Hanzalah storkar orrahríðinni Þessi naflausa mynd (sem ég varð að gefa nafn til að birta hér) er eftir Naji Al'Ali, þekktasta myndasöguhöfund Palestínu. Strákinn sem steitir hnefann á móti fallandi sprengjum merktum og stóru olíutunnunni kallaði höfundurinn Hanzalah (“lítill og bitur eyðimerkurrunni” á arabísku). Hanzalah er bæði táknrænn fyrir Palestínumenn en um leið almenning hvarvetna, sjónarvotta sögunnar. Á eldri myndum stendur hann jafnan með hendur fyrir aftan bak og horfir á, snúandi baki í lesandann. Hanzala verður einnig táknrænn fyrir lesandann sjálfan sem virðir myndina fyrir sér. Hann stendur fyrir samviskuna. al-'Ali var myrtur í London 1987 og enn hefur banamaður hans ekki fundist. Myndirnar lifa hins vegar áfram.