Mainstream múslimar mótmæla viðbrögðum háværa minnihlutans - Trafalgar Square, London, síðasta laugardag Mainstream múslimar safnast saman, komnir með leið á að hávær minnihlutinn steli alltaf frá þeim athyglinni með látum sínum og skemmi fyrir vitrænni umræðu og tækifærum annara múslima til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Í kjölfar háðmynda málsins söfnuðust múslimar saman á Trafalgar Square í London síðasta laugardag. Fulltrúar allra helstu samtaka múslima á Bretlandi voru þarna, þar á meðal The Islamic Mission, Muslim Association of Britain og The Islamic Society.

Vitræn umræða kom þarna saman á móti innantómum hávaða, hvort sem er í múslimska minnihlutanum eða yfirborðslegum, æsingafjölmiðlunum.