Deiglan Hér má sjá Merkava 3 skriðdreka sem Palestínskum skæruliðum tókst nýlega að eyðileggja. Þessi atburður var mikið áfall fyrir herinn sem gat beitt þessum drekum að vild hingað til án þess að óttast að þeim yrði grandað. Stórri sprengju hafði verið komið fyrir á stað sem líklegt var að drekinn færi um. Skriðdrekinn valt við höggbylgjuna, turninn rifnaði af og allir 3 áhafnarmeðlimirnir létust samstundis.
______________________________