Ég er ekki par ánægð með það sem ég er farin að sjá hverja einustu helgi í miðbænum. Ég gekk framm á mann liggjandi í götunni milli Dubliners og Victors og það hélt honum einn dyravörðu niðri, ekki veit ég hvað maðurinn hafði gert en enginn verðskuldar barsmíðar. Þá komu tveir dyraverðir af victor askvaðandi og beint á manninn, svo tóku þeir í fótinn á honum og hendina og drógu hann eftir götunni upp á gangstéttina, ekki bara úr umferðinni, heldur 30 metra til viðbótar!! Alveg að bankanum við hliðina á dubliners, þá voru þeir allir á honum og einn sparkaði í manninn þar sem hann lá í götunni..!!! Ég varð svo reið að ég æpti á þá hvurslags hrotta skapur þetta væri, en þurfti að forða mér þegar einn ætlaði bara að hlaupa í mig!! Þetta eru valdasjúkir ofbeldisseggir og eru sennilega stoltir af því.. og mér finnst þetta því miður vera svona upp til hópa.. hrokafullir menn með nasista einkenni.. Ekki það að ég þekki alveg til nokkurra vandaðra dyravarða sem eru virkilega almennilegir, og ekkert er út á að setja, En þetta finnst mér aðalega vera einkennandi fyrir þessa staði og mest þá við Glaumbar. Ég tek fram að ég er gjörsamlega hlutlaus áhorfandi í þessu máli og veit ekkert hver maðurinn var né hvernig málunum lauk eftir að ég tók til fótanna. Svona er þetta víst og löggan horfir á.. Enda býst ég við að margir dyraverðir af þessu tagi séu upprennandi lögreglumenn.