núna hafa íslensk yfirvöld loksins gefist upp á þessu með Falun gong
ég skil þetta ekki alveg hjá þeim…þeir stoppa alla sem hafa asískt útlit til að athuga hvort þeir séu í Falun Gong…og svo fer Dabbi bara eitthvað að koma með afsakanir með að þeir séu að gera alveg eins og Bandaríkjamenn…þar tók hann dæmi um 600-700 manns inn í bandaríkin en við erum að tala um rétt 100 manns… + það að við erum ekki bandaríkin eins og davíð virðist halda stundum….svo hleyptu þeir þessu fólki loks inn í landið en ekki jókst lögregluliðið á einni nóttu..
Ég skil ekki fyrst að þeir þurfa að vera að bjóða þessum höfðinjgum hingað til lands að geta þá annaðhvort tekið því sem fylgir eða þá bara sleppt því að bjóða þeim hingað og láta þá þá bara vera heima hjá sér….