Ég veit ekki hvaða álit fólk hefur á ,,friðarbandalaginu NATO'
og er í raun nokkuð sama um það. Ég ætla ekkert að vera að
tjá mig um hversu gott eða vont það er fyrir Íslendinga að vera
hluti af NATO. Mig langar bara að koma þessum frábæra link
á framfæri. Þarna er hægt að sjá myndir sem við erum ekki
vön að sjá, myndir sem sýna hversu mikið friðarbandalag
þessi klíka er. Tekið skal fram að allt sem þið getið séð á
þessum myndum eru hlutir sem við Íslendingar erum sem
lýðræðisleg þjóð og meðlimir í NATO ábyrg fyrir. Við erum
ábyrg fyrir þessu vegna þess að allar þjóðir sem eru í NATO
eru ábyrgar fyrir gjörðum NATO, og við erum sem hluti af
lýðræðislegu þjóðfélagi ábyrg fyrir ÖLLU því sem ríkisstjórn
okkar gerir.