Mig langar að leggja það til að við HUGARAR kaupum miða AÐRA leiðina fyrir p4a til fyrirheitna landsins á íslensku þ.e. landsins sem gyðingar segja að Guð hafi lofað þeim. Mig minnir nú samt að það hafi verið eitt að áróðursbrögðum Móse til að halda kynþætti Abrahams (the race of Abraham) saman þegar þeir ráfuðu í 40 ár í eyðimörkinni. Og Mose ekki búinn að ákveða hvaða landskiki það væri sem Guð hefði gefið þeim. Taka verður tillit til þess að A. Sharon og Mose voru báðir leiðtogar kynþáttarins en þó einhver 4000 ár skilji þá að í tíma þá er hlutverk þeirra hið sama þ.e. að reyna að halda liðinu saman. Varðandi JDL þá er þeirra síða álíka áræðanleg í sínum málflutningi og vefsetur Hells Angels. Það veri reynandi að fá einhvern hinna brottflúnu Gyðinga frá Ísrael sem ekki geta hugsað sér að búa í landi sem byggt er á grimmd og hatri í garð þeirra sem fyrir voru þegar Zionistar byrjuðu slaginn. Einnig má benda á að bretar fyrir 1948 töldu Zionistana réttdræpa glæpamenn enda var þá þeirra heilaga markmið að myrða sem flesta breska hermenn. Morð og hryðjuverk var það sem Zionistar höfðu á stefnuskránni, og það voru ekki þjóð Palestínumanna sem var þeirra helsti óvinur heldur Bretar.
<br><br>Methyl