Sæll p4a.

Gerir þú þér einhverja greyn fyrir því að af öllum hugurum eru kannski ekki nema 0,0002% sammála málefnum þínum.

Segir það þér ekkert að þú stendur nánast einn með þessum gáfulegu athugasemdum þínum.
Flestir hérna vilja ignora þig og aðrir að þú verðir hreynlega bannaður hérna. Segir það þér ekkert heldur?

Nei, þú heldur áfram að berja hausnum við steininn, og pirra alla hérna með þessum leiðindar athugasemdum um að allir hérna séu gyðingahatar og what not.

EN ÞÚ? taktu þér nú spegil í hönd og horfðu smá stund á það sem þú sérð, það sem þú sérð er nefnilega KYNÞÁTTAHATARI.

OG segðu mér nú eitt… Hver er munurinn á að hata gyðinga og að hata araba eða aðra trúarhópa eins og þú gerir? Hefur einhver trúarhópur (þú) meiri rétt á að hata aðra trúarhópa?(araba). Kóraninn er aröbum heilög bók eins og GT er gyðingum heilagt og með þessum ásökunum þínum um að arabar aðhyllist vonda trú og séu hriðjuverkamenn þá ertu búin að stimpla þig fordómafullan rasista…

OG talandi um að breyða út rastisa meðal fólks, þá stendur þú þig afskaplega vel í því verkefni að fá fólk til að hata araba (þá á ég við ef einhver tæki mark á því sem þú segir, sem er ekki).

Hefur þér aldrei dottið í hug að kannski, bara kannski hafir þú ekki rétt fyrir þér. Það er til svo mikið af víðlesnu fólki sem veit um hvað það er að tala. Samt heldur þú því statt og stöðugt fram að ALLIR sem ekki eru sammála þér séu að fara með rangt mál. Kannski ert það þú sem ferð með rangt mál?
Ég skal virða skoðanir þínar og trú á gamla testamenntinu og ást á gyðingum, ef þú leyfir öðrum að vera í friði með sína trú eða trúleysu. Það að gyðingar eru trúarhópur gefur þeim ekki rétt á að drepa annað fólk í nafni trúar. Fyrir guði eru allir menn jafnir og arabar líka, ef þú getur ekki viðurkennt það þá ertu ekki sannkristinn maður (sem þú telur þig vera). Reyndar ertu alltaf að opinbera það betur og betur hvað þú veist lítið um þína eigin trú, Segist vera kristinn en ert samt á móti öllu sem kristnitrú boðar.

Ef þú ætlar að svara þessum pósti, Reyndu þá allavega að gera það eins og manneskja. Ekki eins og einhver öfgasinnaður vitleysingur sem engin tekur mark á.