Notandi sem heitir Ingi sendi inn mynd á dægurmálin Þar sem Ariel Sharon var sýndur í nasistabúningi og davíðsstjörnunni(helgu merki gyðinga) sem var á handlegg hans(eins og nasistarnir höfðu hakakrossinn) var líkt við hakakrossinn!

Gyðingahatur hefur aukist mikið undanfarið og ég hef skrifað mikið gegn því og ætlaði reyndar að hætta því af því að gyðingahatarar hér gerðu lítið úr skrifum mínum. Ég gat samt ekki hamið reiði mína eftir að ég sá þessa mynd og nú fordæmi ég hana ásamt gyðingahataranum sem sendi hana inn.

Ritstjórar huga bregðast lýðræðislegum skyldum sínum með því að samþykkja svona rasisma. Ég ætla að senda ritstjóra huga bréf og kvarta yfir því að svona ógeð sé samþykkt. Ef að hann gerir ekkert í þessu þá ætla ég að hafa samband við Jewish Defense League sem munu svo reyna að hafa samband við stjórnendur huga.

Þessi mynd er ólögleg samkvæmt Íslenskum lögum vegna þess að hún lýsir kynþáttahatri en rasismi er bannaður á opinberum vettvangi á Íslandi.

Undir myndinni stendur “Heil Sharon” eins og stundum var sagt “Heil Hitler” en þessi “Heil” kveðja er bara notuð af nasistum og er bönnuð í flestum lýðræðisríkjum. Það ættu að vera lög hérna um þetta líka svo við gætum kært þrjótinn fyrir að skrifa þetta um Sharon þar sem höfundurinn er að bera hann saman við Hitler, mesta illmenni sögunnar.

Það er líka gyðingahatur að líkja gyðingum við nasista af því að nasistarnir hötuðu gyðingana og myrtu 6 milljónir þeirra í helförinni. Gyðingar eru ekki eins og nasistar af því að nasistar hötuðu alla sem voru ekki jafn ógeðslegir og þeir sjálfir en gyðingarnir vilja bara fá að búa í landinu sem þeir eiga með alþjóðasamningum, út af helförinni og trúarbók sinni.

Sama hyski og sakar gyðinga um að vera nasista eru líka oft að neita helförinni og segja gyðinga ekki vera guðs útvöldu þjóð. Sama hyski vill líka ræna Palestínu af gyðingunum en gyðingarnir eiga landið einir út af trúarbók sinni.

Ég krefst þess að ritstjórar huga banni svona í framtíðinni því annars mun ég kæra vefinn til lögreglu þannig að honum verði lokað. Ég vil líka fá afsökunarbeiðni frá notandanum sem sendi inn myndina. Annars mun ég láta banna hann.

Það er skylda okkar á huga að koma í veg fyrir gyðingahatur af því að það er rangt.