jæja . hvað ætli ég skrifi hér um :D

eins og allir sem lesa hér á huga vita , þá sérstaklega hér á deiglunni þá er herra/frú peace4all mikið fyrir að æsa fólk upp með skrifum sínum.

hingað til hef ég ekki tjáð mig mikið um hans/hennar skrif enda eru þau ágætislestur og ég fæ mikla skemmtun af :D , einnig hef ég gaman af því að sjá hve auðvelt fólk á með að trúa því að þetta sé einhver sem skrifar í alvöru.
að mínu mati, eftir ítarlega lesningu á hans/hennar skrifum og þau svörum sem hann hefur fengið, þá eru þetta mínar niðurstöður.

byrja á rökstuðning og smá umfjöllun.

(héðan af mun peace4all vera þekktur sem p4a, þar sem ég einfaldlega nenni ekki að skrifa nafnið oftar í heild sinni)

p4a skrifar stundum eins og kvk og stundum eins og kk

p4a er í mikilli mótsögn við sjálfan/n sig, og jafnvel heimsk manneskja sem ég efa að hann/hún sé, gæti séð það.

p4a skrifar einungis til að bulla í fólki.

ályktun => p4a er engel (ekki taka þetta til þín elskan ef þetta ert ekki þú) eða einhver sem hefur skrifað álíka og hann.


nú ef þetta er ekki einhver sem er að þykjast, sem ég hef enga trú á, þá tel ég mig nauðugan til að benda á nokkrar rökvillur í hans/hennar skrifum.

hún/hann segist fyrst hata alla araba, en síðan segist hafa einungis verið að meina þá sem voru vondir við gyðinga(hægt að mismæla sig, og tek ég það gilt) , en, þar sem hann/hún segir einnig að hann/hún vilji afnema islam því sú trú sé “vond” eða hvað sem hún/hann kallaði það, þá vantar annan rökstuðning fyrir utan að [islam er iðkuð að aröbum, arbar eru vondir við gyðinga, þar af leiðandi á að afnema islam] í mínum bókum má færa þetta yfir á hvaða þjóðflokk/kynþátt/trúarflokk sem er og einnig segja [kristni er iðkuð af þjóðverjum, þjóðverjar voru vondir við gyðinga, þar af leiðandi á að afnema kristni] eða [hindú er iðkuð af indverjum, indverjar eru vondir við pakistani, þar af leiðandi á að afnema hindú]. þar sem að þetta eyðileggur öll þau “rök” sem p4a hefur komið með sem styðja það að það skuli afnema islam þá sný ég mér að næsta máli.
p4a segir [ég hata bara þá araba sem voru vondir við gyðinga] og eins of fleiri hafa bent á þá segist p4a einnig vilja reka burt araba héðan af íslandi, og hvernig getur p4a ekki verið fordómafullur sem hann/hún segist ekki vera, nema að VITA MEÐ VISSU að þeir arabar sem eru hérlendis séu búnir að fremja einhver ódæðisverk í garð gyðinga, sem engar líkur eru á né að allir þeir arabar sem eru hérlendis hafi framið eitt né neitt í garð gyðinga.
p4a segir [ég hata þá araba sem voru vondir við gyðinga] þarna má einnig setja hvaða flokka sem er inn, þannig að nema p4a hati alla sem eru vondir við einhvern þá er hann/hún kynþáttahatari, því hvaða rök eru fyrir því að vilja hata þá araba sem eru vondir framyfir að vilja hata ameríkana eða ísraela eða hvern sem er sem eru vondir við einhvern annan.
p4a segir [alvöru gyðingar eru ekki vondir] ég geri ráð fyrir að hann hafi þá farið yfir trúarrit þeirra og lesið þar um þær reglur sem þeir “eiga” að tileinka sér, ef p4a vill halda því fram að hver sá sem brjóti þær reglur sem honum er ætlað að lifa eftir, hætti að trúa á, þá eru ekki margir trúaðir í dag, og hver er p4a til að ákveða það að guð allra trúarbragða heimsins séu allt í einu hættir að fyrirgefa. En ef p4a er svona fróður um trú gyðinga þá vil ég að hann bendi á hvar hann fékk þennan fróðleik, og gefi okkur hinum “óupplýstu” tækifæri til að nálgast þennan viskubrunn svo við getum talað við hann um þessi mál á jöfnum grundvelli.
p4a segir [ég hata þá araba sem voru vondir við gyðinga] hvað er það sérstaklega við araba sem leyfir þeim ekki að vera vondir eins og öðrum í heiminum, allir mega vera vondir, þeir mega ekki gera á bát annara nema að vera tilbúnir að taka afleiðingum sem að munu fylgja, en þeir mega það alveg. Mega aðrir vera vondir, eða má kannski vera vondur við hvern sem er NEMA gyðinga? ef svo hvað er það sem gerði gyðinga sérstaka að það má ekki vera vondir við þá ? nú dettur mér í hug mögulegt svar frá p4a “helförin” , og það er nú bara ekki nógu góð ástæða, og í raun engin ástæða, það að einhver var vondur við þig í fortíðinni gefur þér enga sérstöðu í þessum blessaða heimi okkar, sem á að koma í veg fyrir að aðrir mega vera vondir við þig aftur.

en eins og við vitum öll þá er p4a ekki að tala í alvöru heldur bara uppá grín :D og við skulum bara njóta hans á þann háttinn, sem öruggrar uppsprettu vitleysu og gríns hér á huga :D

og já hann er þetta svokallaða Troll okkar huga-ara , förum nú að vaxa uppúr því að æsa okkur yfir hverju og einu orði sem kemur frá kjána tröllinu okkar, hlægjum að því enda er það víst ástæðan fyrir þessum skrifum hans.

ps. hæ engel :P

góðar stundir
gaur22