(Abesynth sendi inn þessa mynd.
Nýlega hefur Ísraelsher ákveðið það að "stríðið gegn hryðjuverkum skuli einnig ná til sjúkraflutningamanna en jafnvel hinir verstu talebanar og nasistar hafa í gegnum tíðina viðurkennt friðhelgi rauða krossins og rauða hálfmánans.)

Þarna er gyðingum líkt við nasista sem er ósanngjarnt af því að nasistarnir myrtu 6 milljónir gyðinga í helförinni og gyðingarnir eru ekki nasistar.

Gyðingum er líka líkt við flokk múslima í þessum texta, Talebana sem kúgaði fólk í Afganistan svo mikið að bandaríkjaher réðst á móti flokknum til þess að koma honum frá völdum.

Ísraelsher virðir friðhelgi Rauða Krossins en nokkrir sjúkraflutningamenn létu lífið í árásum ísraelsher gegn hryðjuverkamönnum fyrir slysni.

Stríðið gegn hryðjuverkum nær ekki til sjúkraflutningamanna eins og greinarhöfundur segir. Það er bara á móti hryðjuverkamönnum en þetta var slys eins og ég sagði áðan.

Það er síðan ekki sanngjarnt að líkja ísraelsher við þessi tvö fól!