Ég var að lesa femin.is og rakst á spjallþráð undir Heilsa og megun sem nefnist “Vill kaupa Ripped Fuel/Hydroxycut”.

Eins og einhverjir kannski vita þá er þetta hvoru tveggja ólöglegt hér á landi, eins og er einmitt bent á í svari við fyrsta innlegginu, en umsjónarmenn vefsins sjá ekki ástæðu tl að taka þetta út. Ég hef nokkrum sinnuð séð “Censored” yfir innlegg frá fólki, helst á Sex, svo það tíðkast á þessum vef að taka út það sem þykir ekki við hæfi.
Þar sem það á greinilega ekki við fyrrgreindan spjallþráð hvet ég alla hér sem vantar ólögleg efni sem ekki er hægt að auglýsa eftir á almennun vefsíðum að drífa sig á femin og auglýsa.
Þeir hinir sömu verða auðvitað að koma strax aftur á huga því hér eru mun skemmtilegri umræður og meira varið í vefinn :o)<br><br>Elektra Katz
Elektra Katz