http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/05/07/17_prosent_bandariskra_barna_yngri_en_5_ara_gaetu_s/


Áætlað er að 3,5 milljónir barna yngri en 5 ára í Bandaríkjunum eigi á hættu að þurfa að svelta. Þetta kemur fram í skýrslu sem stjórnvöld hafa látið vinna fyrir sig og greint er frá á fréttavefnum Yahoo.

Þetta þýðir að 17% allra barna í Bandaríkjunum undir 5 ára aldri eiga á hættu að þroskast ekki eðlilega hvorki líkamlega né andlega vegna vannæringar.

Úttektin leiðir einnig í ljós að í ellefu fylkjum Bandaríkjanna nálgist hlutfallið það að vera allt að 20%. Hæst er hlutfallið í Louisiana eða 25%, því næst í Norður-Karólínu, Ohio, Kentucky, Texas, Nýja Mexíkó, Kansas, Suður-Karólínu, Tennessee, Ídahó og Arkansas.

Samkvæmt upplýsingum frá landbúnaðarráðuneytinu skorti 11% bandaríska heimila næringarríkan mat áður en efnahagskreppan skall á af fullum þunga sl. haust.

Anne Goodman, framkvæmdastjóri hjá Cleveland Foodbank í Ohio, segir stjórnvöld bjóða upp á ýmsar lausnir til handa börnum á grunnskólaaldri. Hins vegar sé erfitt að ná til mjög ungra barna sem líða næringarskort.



Segir þetta ekki okkur einhvað um óheftan kapítalisma?

Í bandaríkjunum er offita hvergi annarstaðar jafn mikið vandamál en á sama tíma sveltur 20% af börnum þarna.

Velferðarsamfélag>kapítalismi


Bætt við 8. maí 2009 - 13:16
Btw ég er ekki kommúnisti eða anarkisti og finnst báðar þessar stefnur álíka fáránlegar og kapítalisminn, ef ekki meira. Ég vildi óska þess að heimurinn liti í átt til Norðurlandanna hvað varðar stjórnarfar í stað þess að rembast eins og rjúpan við staur við kapítalismann.