http://www.amnesty.is/undirskriftir

Ofbeldi gegn konum og stúlkum í Afganistan er enn landlægt og birtingarmyndirnar margar. Má þar nefna heimilisofbeldi, mannsrán, nauðganir af hendi vopnaðra manna, mansal, þvinguð hjónabönd (sífellt yngri stúlkur eru nú þvingaðar í hjónaband) og skiptasamninga þar sem konur eru látnar ganga upp í skuldir eða þær látnar af hendi sem sárabætur vegna deilna.