Einn ofurbloggarinn er svo hneykslaður yfir því að ekki hafi farið fram lögreglurannsókn á Máli Árna Johnsens í sambandi við ruglið í honum að það hafi verið eitrað fyrir honum.

Þetta hefur ekki farið í rannsókn , vegna þess að þetta er bara í hausnum á Árna Johnsen.


Í 1. lagi er hann ekkert það merkilegur maður að einhver nenni að standa í því að eitra fyrir honum.

Í 2. lagi er bólga á höndunum ekki það sama og að það hafi verið eitrað fyrir manni.

Í 3 lagi vantar algjörlega ástæðuna. Bykomálið og þjóðleikhúsmálið er ekki nóg til að einhver fari að standa í svona. Það eru miklu “merkilegri” menn sem hægt er að eitra fyrir. Sér í lagi eftir hrunið.

Í 4. lagi vantar sönnun að það hafi verið eitrað fyrir honum. Hvernig eitur?

Í 5. lagi þá er maðurinn að taka inn fæðubótaefni á sama tíma og bólgurnar byrja. Undarleg tilviljun….held ekki.

Ég er búinn að vera með sting í bakinu þessa vikuna. Ætli einhver hafi eitrað fyrir mér .

Hvernig dettur manninum í hug að setja svona bull fram?
JHJ….99 prósent af því sem við segjum og gerum er tilgangslaust