http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4456515/2009/02/07/4/

Hvaða helvítis vitleysa er þetta? Ef samfélagið getur ekki neytt þessa foreldra til að gera lífsnauðsýnilegar varúðarráðstafanir varðandi börnin sín, getum við þá a.m.k. neytt þennan typpaost, Hákon, til að gleypa símaskrá.

Hversu mikla vænissjúka heimsku er hægt að troða í eina manneskju?
“Öhm…ég heyrði að það sé fylgni á milli bólusetninga og einhverfu”.
Það er svo margt sem mig langar að vita um þennan mann og þann skít sem vellur upp úr honum.
Mig langar að vita hvaðan þessi maður fær þessar hugmyndir sínar. Mig langar að vita afhverju hann heldur að sitt mat á hugsanlega skaðsemi ákveðinna lyfja sé gildari en mat þjálfaðra fagmanna. En helst langar mig að vita hvernig hann fær það út að barnið sitt sé betur á sig komið dautt heldur en einhverft.