Jæja fyrir þá sem hafa verið grafnir undir steini síðustu daga og þá sem eru í svo hrikalegri afneitun að þeir sjá ekki hvað er að gerast fyrir þjóðina. þá er ágætis tími fyrir þá að fara að grafa sig upp úr holuni sem þeir eru að fela sig í og fara að gera e-ð í málunum…

sumt aðf því sem ég ætla hér að segja er jú sjálfsagður hlutur hjá mörgum en alls ekki öllum. nú er bara þannig komið að við verðum að spara SPARA (ÞAÐ ER AÐ LEGGJA FYRIR OG EYÐA EKKI PENINGUM Í VITLEYSU)… Og ef við ætlum að kaupa e-ð þá skulum við …NEI við VERÐUM að VELJA ÍSLENSKT OG HALDA PENINGUNUM OKKAR í landinu.
Við verðum að hjálpa fyrirtækjum sem eru að selja úr landi svo við fáum peninga inn án þess að senda peninginn út.
EKKI KAUPA GJALDEYRI. í fyrsta lagi þá lækkar það bara krónuna meira. seljið hann frekar allann og hjálpið til við að hækka hana og styrkja heildina þvið græðum mest á því að sýna heiminum að við getum bjargað okkur sjálf og þurfum ekki neitt. það er allt hér sem við þurfum.

Endilega komið með fleiri hugmyndir og leiðir sem þjóðin getur nýtt sér til að bjarga sér sjálf. þar sem ríkisstjórnin getur ekki gert það.